Í flokki 3.-5. bekkjar tóku sex sveitir þátt. Teflt var „allir við alla“ með 7 mínútna umhugsunartíma á skák. Gríðarlega mikil spenna var í flokknum og réðust úrslitin í lokaskákunum. Skáksveit Háteigsskóla sigraði með 16,5 vinninga en skammt á hæla þeirra voru Salaskóli með 15,5 vinninga og Grunnskóli Grindavíkur með 15 vinninga.
Við tókum þátt í 2 yngstu flokkunum. Á síðustu stundu komu forföll og okkar stelpur í miðflokki voru bara 3, það stoppaði þær ekkert og náðu þær að vinna 1. umferð 3-1.
Í liðinu voru:
1. Aleksandra Todorova Ivanova
2. Lotta Steinþórsdóttir
3. Friðbjörg L. Friðbjarnardóttir
1. Háteigsskóli 16,5 v.
2. Salaskóli 15,5 v.
3. Grunnskóli Grindavíkur 15 v.
…
5. Álfhólsskóli 5 v.
Í yngsta flokknum, flokki 1.-2. bekkjar voru þrjár sveitir skráðar til leiks. Tefld var tvöföld umferð með 5 mínútna umhugsunartíma á skák. Skáksveit Álfhólsskóla í Kópavogi sýndi mátt sinn og sigraði af miklu öryggi með 15 vinninga af 16 mögulegum.
Í liðinu voru:
1. Sól Lilja Sigurðardóttir
2. Tinna Alexía Harðardóttir
3. Arna Kristín Arnarsdóttir
4. Júlía Húnadóttir
Lokastaðan
1. Álfhólsskóli 15 v.
2. Salaskóli 8 v.
3. Háteigsskóli 1 v.