Fjölgreindarleikar í Álfhólsskóla

Í síðustu viku fóru fram fjölgreindarleikar í Álfhólsskóla.  Þriðjudag og miðvikudag voru þeir á miðstigi en fimmtudag voru þeir á yngsta stiginu.  Fjölgreindarleikarnir reyna á óhefðbundna eiginleika náms.  Settar voru upp stöðvar fyrir nemendur okkar og innihéldu þær ýmislegt krefjandi.  Finndu út frá hvaða landi fáninn er? Hvað heitir umferðarmerkið? Taktu þátt í karókí, farðu í jöklahlaup með húllahring, svaraðu spurningum um frægt fólk, lærðu að dansa, farðu og kepptu í brennó, byggðu manneskju úr legókubbum á 15 mínútum, lærðu teygjó uppá nýtt, gáðu að því hvað er í pokanum og svo ennþá fleiri stöðvar sem reyndi á öðruvísi greind og færni.  Skemmtilegir dagar hjá krökkunum.  Hér eru myndir sem við tókum úr starfinu þessa fjölgreindarleika.  
Posted in Fréttir.