Í dag fékk Álfhólsskóli Grænfánann afhentan í annað sinn á jafnmörgum árum. Fulltrúi Landverndar kom í heimsókn og var fáninn dreginn að húni af nemendum okkar og grænfánateymi skólans. Virðuleg athöfn með örlítilli rigningu til að fríska andblæ okkar. Farið var í skrúðgöngu yfir í Digranes þar sem fáni var einnig dreginn að húni. Eftir athöfnina var haldin Vorhátíð skólans þar sem hoppukastalar, andlitsmálun, so you can dance og fleira skemmtilegt var í boði. Pylsur voru grillaðar eins og von er vísa þegar uppbrotsdagar eru. Til hamingju Álfhólsskóli með Grænfánann. Hér eru nokkrar myndir af athöfn dagsins og vorhátíðinni.