Nemendur í áttunda og níunda bekk í Kópavogi fá afhentar spjaldtölvur

Nemendur í áttunda og níunda bekk í Kópavogi fá afhentar spjaldtölvur mánudaginn 7. september. Þá verða tæplega 900 tæki afhent en spjaldtölvuvæðing grunnskóla í Kópavogi hefst með þessum tveimur árgöngum.

Haldnir verða kynningarfundir í skólunum fyrir foreldra í tengslum við afhendinguna þar sem farið verður yfir ýmis hagnýt atriði, reglur um notkun tækjanna og aðra skilmála. Þá fá nemendur fræðslu um netöryggi og stafræna borgaravitund áður en þeim eru afhent tækin.

Kynningarfundur fyrir foreldra nemenda í Álfhólsskóla verður haldinn miðvikudaginn 2. september kl. 17 í salnum í Hjalla.

Allir kennarar í grunnskólum Kópavogs fengu afhentar spjaldtölvur í júní og sóttu margir þeirra námskeið í sumar til að kynna sér notkun spjaldtölva í kennslu. Með afhendingu spjaldtölvanna í áttunda og níunda bekk hefst innleiðing spjaldtölva í grunnskóla á mið- og unglingastigi í Kópavogi. Sjötti og sjöundi bekkur fær spjaldtölvur upp úr áramótum og síðustu tveir árgangar næsta haust.

Markmið spjaldtölvuvæðingarinnar er að bæta skólastarf í Kópavogi þannig að árangur verði áfram í fremstu röð en áherslur breytist í takt við nýja tíma. Allir nemendur í fimmta til tíunda bekk munu vera með spjaldtölvur frá og með næsta hausti en auk þess fá skólar úthlutað spjaldtölvum sem nemendur í yngri bekkjum munu hafa aðgang að í skólanum.

Nemendur munu fá Apple iPad spjaldtölvur en sú ákvörðun var tekin að loknu ítarlegu matsferli þar sem margar gerðir spjaldtölva voru skoðaðar. Notaður er umsýsluhugbúnaður sem kallast AirWatch sem gerir kleift að dreifa efni á spjaldtölvurnar, bæði námsbókum og forritum, sem og að rekja staðsetningu tækis ef það týnist og gera það ónothæft sé því stolið.

Tækjunum fylgir ýmis konar hugbúnaður sem nemendur geta nýtt í leik og starfi og þá fá allir nemendur afhent hulstur með spjaldtölvunni til að verja hana gegn skemmdum.

Þá eru nánari upplýsingar á vef spjaldtölvuverkefnisins: spjaldtolvur.kopavogur.is og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið spjaldtolvur@kopavogur.is

Posted in Fréttir.