skakmyndkop

Skólaskákmót Kópavogs í sveitakeppni

skakmyndkopSkólaskákmót Kópavogs í sveitakeppni fyrir grunnskólanemendur verður haldið sunnudaginn 28. apríl nk. í Álfhólsskóla (Hjallamegin).
Keppt er í fjórum flokkum:
Kl. 11.00- 13.30 5 umferðir og 2×5 mín umhugsunartími

1. flokkur 1.-2. bekkur  
2. flokkur 3.-4. bekkur
Kl. 14.00 – 17.00 5 umferðir og 2×10 mín umhugsunartími

3. flokkur 5.-7. bekkur
4. flokkur 8.-10. bekkur
Allir krakkar sem kunna skákreglur og eru skráðir til náms við grunnskóla í Kópavogi eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.  Gull, silfur og brons verðlaun verða veitt fyrir hvern flokk fyrir sig. Hverjum liði þarf að fylgjast liðstjóri. Yngri krakkar geta teflt í eldri flokki.

Liðin verða að skrá sig fyrir kl 12:00 föstudaginn  26. apríl 2013.

Skráning fer fram á lenkaptacnikova@yahoo.com
Seldar verða veitingar á staðnum.  Greiða verður með peningum.

Posted in Skák.