Miðvikudaginn 13. mars s.l. var keppt í skólahreysti. Álfhólsskóli endaði í 5. sæti af 14 skólum í okkar riðli með 54 stig sem er flottur árangur og annar besti árangur Kópavogsskólanna í ár. Keppendur voru, Þórhildur Braga Þórðardóttir, Már Jóhannsson, Alexander Bjarnason, Helga Karitas Runólfsdóttir og Azra Cosic. Þau stóðu sig eins og áður sagði frábærlega í þessari mjög svo krefjandi keppni. Einungis Þórhildur er úr 10. bekk en hin úr 8. og 9. bekk og ættu því að geta komið enn sterkari til leiks að ári.