Öskudagsgleði í Álfhólsskóla var haldin hátíðleg í dag 22.febrúar 2012. Mjög öflug dagskrá var skipulögð á ýmsu stigum skólans. Fáránleikar fóru fram á unglingastigi þar sem nemendur öttu kappi í limbó, bimbó, teygjubyssuskotfimi svo eitthvað sé nefnt. Á miðstiginu bar hæst leikurinn „raðaðu kennaranum saman“ en það var keppni milli bekkja og var sá leikur mjög skemmtilegur. Á yngsta stiginu var áherslan lögð á dansa og leiki ásamt því sem kötturinn var sleginn úr tunnunni. Nemendur og starfsfólk mættu að sjálfsögðu í öskudagsbúningum í skólann. Foreldrafélagið gaf síðan öllum nammi eftir daginn. Hér eru myndir frá deginum.