Starfsreglur Foreldrafélags Álfhólsskóla um kosningu í skólaráð
1. Stjórn foreldrafélagsins auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra/forráðamanna í skólaráð Álfhólsskóla. Tryggja skal að öllum foreldrum berist slík auglýsing. Auglýsinguna skal senda með tölvupósti eða sambærilegum hætti til allra foreldra og birta á heimasíðu skólans og foreldrafélagsins. Í auglýsingunni er hlutverk skólaráðs kynnt og að fulltrúar séu kosnir til tveggja ára í senn. Tilnefningum skal skilað til formanns foreldrafélagsins eða senda í tölvupósti á netfang foreldrafélagsins: ffalfhol@gmail.com.
2. Auglýsa skal eftir framboði foreldra í skólaráð í síðasta lagi viku fyrir aðalfund foreldrafélagsins.
3. Allir foreldrar/forráðamenn barna í Álfhólsskóla eru kjörgengir nema þeir séu kennarar eða starfsfólk skólans eða sitji sem kjörnir fulltrúar í skólanefnd Kópavogs
4. Annar fulltrúi foreldra í skólaráði skal vera meðstjórnandi í stjórn foreldrafélagsins.
5. Ef enginn gefur kost á sér þá leitar stjórn foreldrafélagsins eftir foreldrum til að gefa kost á sér.
6. Kosið er í skólaráð á aðalfundi foreldrafélagsins. Ef fleiri en einn er í kjöri skal kosið á milli frambjóðenda með leynilegri kosningu.
7. Skólaráðsfulltrúi skal kosinn til tveggja ára í senn en einungis kosinn einn fulltrúi ár hvert svo að báðir fulltrúar foreldra fari ekki úr skólaráðinu á sama tíma.
Varamenn skal kjósa í samræmi við það..
8. Að öllu jöfnu skal miða við að fulltrúi foreldra sitji ekki lengur en fjögur ár samfellt í skólaráði.
Samþykkt á aðalfundi foreldrafélagsins 17.maí 2011