Reglur foreldrarölts Álfhólsskóla
Megin reglan er: Að vera til staðar
Foreldrar hafa ekki afskipti af unglingum nema:
- Unglingur er áberandi drukkinn.
~ hringja í lögregluna og fylgjast með viðkomandi unglingi þar til hún er mætt á staðinn.
~ Ef sami unglingur er oft áberandi drukkinn er slíkt tilkynningaskylt til unglingafulltrúa
- Foreldrar verða varir við sölu áfengis, landa eða annarra fíkniefna.
~ tilkynna slíkt strax til lögreglu og láta henni í té upplýsingar.
- Ofbeldi og /eða hnífaburður á sér stað
~ hringja í lögreglu strax.
~ taka enga áhættu.
- Foreldrar verða varir við partý í heimahúsi og unglingar leita aðstoðar foreldrarölts
~ hringja í lögregluna.
~ bíða fyrir utan þar til lögregla kemur.
- Foreldrar verða vitni að skemmdarverkum
~ hringja í lögregluna og láta henni í té upplýsingar um máli
Það sem ekki má:
~ Það má ekki vera í vondu skapi í foreldarröltinu
~ Það má ekki skammast í unglingum
~ Það má ekki leita að áfengi á unglingum
~ Það má ekki taka áfengi af unglingum
~ Það má ekki hafa bein afskipti af sölumönnum áfengis og fíkniefna
~ Það má ekki ráðast til atlögu við ofbeldisfulla unglinga
~ Það má ekki fara inn í partý í heimahúsum
~ Það má ekki segja frá hvaða börn og unglinga foreldrar eiga
~ Það má ekki skrá nöfn unglinganna í dagbókina
Umsjónarmenn