HANDBÓK FORELDRAFÉLAGA GRUNNSKÓLA
Handbók þessi er hugsuð til þess að auðvelda stjórnarmönnum foreldrafélags og fulltrúum foreldra í skólaráði störfin og auka aðgengi foreldra, skólastjórnenda og fræðsluyfirvalda að upplýsingum um starfsemi foreldrafélagsins.
Markmið handbókarinnar er:
Að efla starf foreldrafélagsins og vera öflugt bakland fyrir fulltrúa foreldra í skólaráði
Að auðvelda störf stjórnarfólks og tryggja samfellu í starfinu
Gera aðkomu foreldra að skólastarfinu sýnilegri í skólasamfélaginu
Handbókin er gerð af Heimili og skóla og nálgast má hana í heild hér