Náms- og starfsráðgjöf í Álfhólsskóla
Náms- og starfsráðgjafar í Álfhólsskóla eru:
Malla Rós Valgerðardóttir, náms- og starfsráðgjafi – mallaros@kopavogur.is
Rakel Sif Níelsdóttir, náms- og starfsráðgjafi – rakelsif@kopavogur.is
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa samkvæmt aðalnámskrá felst í því að vinna með nemendum, foreldrum, kennurum, skólastjórnendum og öðrum starfsmönnum skólans að ýmiss konar velferðarstarfi er snýr að námi, líðan og framtíðaráformum nemenda. Náms- og starfsráðgjafi er trúnaðarmaður og málsvari nemenda.
Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa eru:
Að veita nemendum ráðgjöf við náms- og starfsval með til dæmis áhugasviðskönnun, skipulagri náms- og starfsfræðslu og aðstoða nemendur við val á framhaldssnámi.
Aðstoða nemendur við vinnubrögð í námi til dæmis skipulag, lestraraðferðir, minnistækni og prófundirbúning.
Ráðgjöf vegna persónulega mála í formi einstaklings- og/eða hópráðgjafar.
Einnig eru náms- og starfsráðgjafar í teymisvinnu og sitja í eineltisteymi, áfallateymi, forvarnarteymi og nemendaverndarráði.
Samvinna á milli nemenda og náms- og starfsráðgjafa er grundvöllur þess að ráðgjöfin nýtist nemendum.
Nemendur og/eða forráðamenn geta bókað viðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa í gegnum síma eða tölvupóst. Nemendur koma ýmist að eigin frumkvæði eða fyrir milligöngu foreldra og/eða kennara og annarra starfsmanna skólans.