Nýjustu fréttir

Landnámið enn á ný hjá 5. bekk
Sýning 5. bekkjar fór fram í morgun á leikritinu um Auði Djúpúðgu. Hún var eins og flestir vita frá Hvammi í Dölum. Leikur krakkanna, búningar, tónlist var sem best verður á kosið. Foreldrar og aðrir nemendur nutu sýningarinnar til hins ýtrasta. […]
Barbro Westlund í Álfhólsskóla
Barbro Westlund kom í dag í Álfhólsskóla og hélt hér fyrirlestur um lesskilning og um kennslu í lesskilningi. Mæltist fyrirlestur hennar mjög vel fyrir og var góður rómur gerður af honum. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru af fyrirlestrinum.

Leiksýning 3. bekkjar um Brúsaskegg
Síðastliðinn fimmtudag, 22. september, sýndi leiklistarhópurinn í þriðja bekk leikrit sem spunnið var upp úr þjóðsögunni um Brúsaskegg.Tónlistarhópurinn sá um leikhljóð við sýningu leikaranna og stóðu allir krakkarnir sig mjög vel. Þeir voru samhentir, stoltir og glaðir. Áhorfendur voru einnig mjög […]

Sýning 7. bekkja á sal
Sýning 7. bekkja var á sal í dag. Tókst hún með ágætum. Meðal annars sýndu nemendur dans, spunaverk og tóku lagið. Hér eru myndir af sýningunni.

Heimsókn frá Grænlandi
Í dag komu grænlenskir nemendur í heimsókn í Álfhólsskóla. Þau munu verða hér dagana 19. – 29. september. Hópurinn er frá Kulusuk, Kuummiut, Isordoq, Tinit, Sermiligaaq og Ittoqqortoormiit. Þau munu ganga í bekki og fylgjast með í skólanum svo og fara á sundnámskeið. Munum […]

Samræmd próf í Álfhólsskóla
Framundan eru samræmd próf. Það eru próf í íslensku og stærðfræði í 4. 7. og 10. bekk og ensku í 10. bekk. Dagsetningar og tímasetningar prófanna eru sem hér segir: Dagsetningar samræmdra prófa í haustið 2011: 10. bekkur Íslenska mánudagur 19. […]