Mánudaginn 8.júní voru 71 nemandi í 10.bekk Álfhólsskóla útskrifaðir við hátíðlega athöfn á sal skólans í Hjalla.
Athöfnin hófst á ræðu Sigrúnar Bjarnadóttur, skólastjóra, og Hekla Sigríður Ágústsdóttir flutti syrpu af lögum eftir Pink Floyd á píanó.
Veittar voru viðurkenningar til nemenda frá foreldrafélaginu og skólanum. Viðurkenningarnar voru eftirfarandi:
Verðlaun fyrir félagsstörf: Iðunn Kara Hrannarsdóttir
Verðlaun fyrir framfarir og seiglu: Anh Phu Nguyen, Magnús Máni Magnússon og Mateusz Pawel Zawada
Verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur: Elísabet María Júlíusdóttir, Erna Karen Arnviðardóttir og Júlía Húnadóttir
Chloe Minguez Martini og Hekla Sigríður Ágústsdóttir fluttu svo lög fyrir gesti. Iðunn Kara Hrannarsdóttir og Elma Björk Jacobsen Helgadóttir ávörpuðu svo gesti með skemmtilegri kveðju fyrir hönd útskriftarnemenda.
Að lokum kvaddi skólastjóri útskriftarhópinn með ávarpi.
Eftir athöfnina bauð skólinn öllum viðstöddum upp á veitingar.
Fleiri myndir má finna á facebook síðu skólans: https://www.facebook.com/alfholsskoli/
