Dagana 2. – 5. desember var hið árlega Kærleikskaffihús hjá okkur í Álfhólsskóla á sal skólans í Hjalla.
Kærleikskaffihúsið er fyrir löngu orðið að hefð í Álfhólsskóla í desember en á kærleikskaffihúsinu hittast vinabekkirnir/árgangar, borða saman vöfflur með sultu og rjóma og drekka heitt súkkulaði við kertaljós. Jólatónlist ómar um salinn og dásamlegur jólaandi svífur yfir öllu.
Vinabekkir ýmist syngja svo jólalög eða lesa kærleikssögu fyrir hvorn annan.
Starfsfólk skiptist á að baka vöfflur og þjóna til borðs. Þetta heppnaðist ákaflega vel að vanda og vakti mikla lukku meðal nemenda.
Myndir má finna á facebook síðu skólans: HÉR
