Starfamessa Álfhólsskóla 2024 var haldin með pompi og prakt í morgun 9. febrúar fyrir nemendur í 9. og 10. bekk.
Viðburðurinn, sem var í umsjón náms- og starfsráðgjafa skólans, var frábær í alla staði og gekk mjög vel fyrir sig! Viðburðurinn eflir enn frekar og styður við gott samstarf milli skólans og heimila, ásamt því að veita nemendum innsýn inn í ólík störf og menntunarmöguleika, sem nýtist þeim vonandi mjög vel í þeirra eigin vegferð og framtíð.
Þátttaka var gríðarlega góð! Glæsilegur hópur 13 foreldra og 5 annarra velunnara, ásamt flottum fulltrúum frá Menntaskólanum í Kópavogi, Tækniskólanum og Landskrifstofu Erasmus+ tóku vel á móti nemendum og kynntu fyrir þeim störf sín og menntun.
Nemendur gengu á milli borða og tóku mjög virkan þátt, voru fróðleiksfús, áhugasöm og nýttu þetta frábæra tækifæri mjög vel!
Þarna var kominn saman mjög fjölbreyttur hópur starfsheita. Nemendur fengu tækifæri til að kynnast mjög ólíkum störfum og námi en auk fulltrúa framhaldsskólanna og Landskrifstofu Erasmus+ komu til okkar kvensjúkdómalæknir, sérfræðingur í umhverfismálum, hjúkrunarfræðingur, forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðslu hjá Akademias, vísindakona, fjármálastjóri hjá CCP, leikskólakennari, dýralæknir og heilbrigðisverkfræðingur hjá Star Odda, iðjuþjálfi, félagsráðgjafi, lögfræðingur, ökukennari, hársnyrtisveinn, rekstrarstjóri skipadeildar Iceland Travel, ljósmóðir, sjúkraliði og deildarstjóri heima stuðnings og lögreglumaður.
Algjörlega dásamlegur hópur, sem við þökkum kærlega fyrir þátttökuna í ár!