Upplýsingar vegna verkfalla og COVID-19
Upplýsingar vegna verkfalla og COVID-19
Ljóst er að verkfall starfsmanna í Eflingu við Samband íslenskra sveitarfélaga verður enn í gildi á morgun, miðvikudag, samkvæmt kvöldfréttum Rúv. Þar kom fram að fundi var slitið kl. 16:00 dag og næsti fundur ekki áætlaður fyrr en kl. 14:00 á morgun.
Vegna verkfalls starfsmanna í Eflingu miðvikudaginn 11.mars:
- Nemendur verða að koma með nesti að heiman vegna morgunhressingar, hádegismatar og Frístundar.
- Vegna smithættu þurfa börn að taka með sér öll áhöld að heiman. Mjög gott ef nemendur geta verið með sinn brúsa undir vatn og mikilvægt að merkja hann.
- Nesti verður borðað í kennslustofum/matsal eftir aðstæðum.
- Matarafgangar og umbúðir verða að fara heim með nemendum.
- Ekki er hægt að hita vatn, grilla né hita mat í örbylgju.
- Stuðningsfulltrúar, kennarar og skólastjóri sinna gæslu í útifrímínútum.
- Meta þarf stöðuna í þeim stofum sem Frístund notar og það gæti komið til lokunar með skömmum fyrirvara.
- Á morgun verður úttekt á skólahúsnæðinu með tilliti til áframhaldandi skólastarfs vegna þrifa ef verkfall stendur enn.
Vegna COVID-19
- Þjónustusími landlæknis er 1700.
- Mikilvægt er að foreldrar barna með undirliggjandi sjúkdóma fái ráðleggingar um skólasókn í þjónustusíma landlæknis.
- Fjölskyldur sem eru að koma úr fríi erlendis frá verða að fylgja öllum fyrirmælum landlæknisembættisins.
- Verið er að skoða möguleika á fjarkennslu fyrir þá nemendur sem lenda í sóttkví eða einangrun.
- Alla afgreiðslu á mat þarf að endurskipuleggja með tilliti til smithættu. Það verður gert eftir að verkfall leysist.