Á föstudaginn siðastliðinn gengum við í Álfhólsskóla ásamt öðrum gegn einelti í Kópavogi. Gangan hófst hjá okkur kl. 10:00 við Álfhólsskóla (Hjalla) og nemendur marseruðu út í leikskólana til að sækja leikskólabörnin af leikskólum í nánd við skólann okkar. Gangan endaði í íþróttahúsinu Digranesi þar sem fór fram fjöldasöngur og sameiginlegur frumsaminn dans. Allir skemmtu sér vel og nutu samvistanna. Hér eru myndir frá deginum af söng og gleði.