Í dag miðvikudaginn 9. desember komu elstu krakkarnir úr leikskólunum Álfaheiði, Efstahjalla, Fögrubrekku og Kópahvoli til okkar í 1. bekk í kakó og piparkökur. Nemendur í 1. bekk voru búnir að mála piparkökur sem þau buðu uppá og svo fengu allir kakó með rjóma. Þetta var skemmtileg stund og enduðum við á að syngja, Bráðum koma blessuð jólin. Hér eru nokkrar myndir úr heimsókninni. Takk fyrir komuna 🙂