Harpa Lúthersdóttir kom nýlega færandi hendi og afhenti skólanum 30 eintök af bók sinni Má ég vera memm ásamt kennsluleiðbeiningum. Bókin er sérstaklega hugsuð sem kennsluefni fyrir nemendur á yngsta stigi í umfjöllun um einelti. Það er fyrirtækið JOE & THE JUICE sem styrkir þetta verkefni.