Viðureign Álfhólsskóla og Norðmanna var afar spennandi. Það var ljóst að sigur þyrfti að vinnast 3-1 til að Norðurlandameistaratitilinn kæmi í hús. Guðmundur Agnar vann magnaðan sigur á öðru borði eftir að hafa „fórnað“ manni og Róbert sýndi mikinn stöðu- og skákskilning með sigri sínum á þriðja borði. Þegar á reyndi hefði einn vinningur þurft að nást til viðbótar gegn Norðmönnum og litlu mátti muna. Engu að síður frábær árangur hjá Álfhólsskóla sem náði medalínu þriðja árið í röð á þessu móti!
Lokastaðan
- Noregur 15,5 v.
- Álfhólsskóli 13,5 v.
- Danmörk 12,5
- Rimaskóli 10 v.
- Svíþjóð 8,5
- Finnland 0 v.
Aðstæður á Hótel Selfossi voru mjög góðar og mikil ánægja hinna erlendu keppenda með góðar aðstæður. Það er ljóst að Hótel Selfoss er frábær skákstaður og líklegt að framhald verði á frekara mótahaldi þar í haust á vegum SÍ.
Í gær tók hópurinn þátt á í skákmóti á Fischer-setrinu í umsjón Skákfélags Selfoss og nágrennis og hluti hópsins fór Gullna hringinn. Skákstjórn önnuðust Steinþór Baldursson, Gunnar Björnsson og Stefán Steingrímur Bergsson. Frétt fengin að láni hjá Skák.is