
Í öðru sæti varð Díana Rós Hanh Jónatansdóttir frá félagsmiðstöðinni Þebu. Díana Rós flutti lagið „Make you feel my love“ með Adele. Bjarki Freyr Guðmundssson lék undir á píanó. Í þriðja sæti varð Heiða Björk Garðarsdóttir frá félagsmiðstöðinni Fönix. Heiða Björk flutti lagið „Read all about it“ með Emeli Sande.
Þau sem hrepptu þrjú efstu sætin verða fulltrúar Kópavogs í söngkeppni Samfés sem fram fer í Laugardalshöllinni 8. mars nk.
Þau sem hrepptu þrjú efstu sætin verða fulltrúar Kópavogs í söngkeppni Samfés sem fram fer í Laugardalshöllinni 8. mars nk.
Dómarar í keppninni í ár voru:
Ásdís María Viðarsdóttir, sigurvegari söngkeppni framhaldsskólanna 2013
Svavar Knútur, söngvari og lagahöfundur
Óttar G. Birgisson, gítarleikari hljómsveitarinnar 1860
Unnur Eggerts, söngkona og „Solla stirða“
Þórunn Erna Clausen, leikkona og lagahöfundur
Á meðfylgjandi mynd eru eftirfarandi, talið frá vinstri: Torfi Tómasson, sigurvegari söngkeppinnar 2013. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Díana Rós og Bjarki Freyr, Elín Ylfa og Tara Sóley Mobee, Heiða Björk Garðarsdóttir og Héðinn Sveinbjörnsson formaður frístunda- og forvarnanefndar Kópavogs.