Sveit Álfhólsskóla vann sigur á gríðarlega spennandi Íslandsmóti barnaskólasveita sem fram fór í Rimaskóla um helgina. Þar með varði skólinn Íslandsmeistaratitil sinn en sveitin vann einnig mótið árið 2012. Skáksveit Rimaskóla varð í öðru sæti og skáksveit Hraunvallaskóla úr Hafnarfirði tók þriðja sætið.
Sveitir Álfhólsskóla og Rimaskóla höfðu allmikla yfirburði. Eftir fyrri dag mótsins voru sveitirnar jafnar og efstar með 16 vinninga í 20 skákum. Í sjöttu umferð unnu þær báðar 3-1 og í sjöundu og áttundu umferð lögðu þær báðar andstæðinga sína 4-0. Þær voru því hnífjafnar fyrir lokaumferð mótsins og margt benti til þess að þær þyrftu að heyja aukakeppni um titilinn. Til þess kom ekki því Álfhólsskóli vann sveit Ölduselsskóla 4-0 en á sama tíma vann Rimaskóli Melaskóla 3-1. Þar með var ljóst að Álfhólsskóli hafði varið titilinn. Þessar sveitir höfðu mikla yfirburði. Álfhólsskóli hlaut 31 vinning í 36 skákum, Rimaskóli 30 vinninga og svo voru sjö vinningar í næstu sveitir sem voru Hraunvallaskóli úr Hafnarfirði og Hörðuvallaskóli með 23 vinninga.
Álfhólsskóli mun því taka þátt í Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í Finnlandi í september. Á síðasta Norðurlandamóti sem haldið var í Svíþjóð sl haust lenti sveitin í 2.sæti en sveitin er ákveðin í að gera enn betur núna í haust.

Skáksveit Álfhólsskóla skipuðu:
1. Dawid Kolka
2. Felix Steinþórsson
3. Guðmundur Agnar Bragason
4. Oddur Þór Unnsteinsson
1. Dawid Kolka
2. Felix Steinþórsson
3. Guðmundur Agnar Bragason
4. Oddur Þór Unnsteinsson
Skákkennari og liðsstjóri er Lenka Ptácníková.