Ágætu nemendur, kennarar og foreldrar.
Þá er að hefjast önnur umferð í spurningakeppninni „Lesum meira“ og mikilvægt að allir nýti tímann sem best til lestrar. Hér má finna blað um reglur keppninnar og hvaða bækur eru á vallistum. Við hvetjum alla til að kynna sér blaðið vel.
Hvert bekkjarlið á sér sinn lit og hér er listi yfir bekkjarliðin og hvaða liti þau eiga. Einnig koma hér fram keppnisdagar og hvaða lið muni keppa í annarri og þriðju umferð. Að lokum hvetjum við ykkur til að vera dugleg að afla bóka sem víðast, á almenningssöfnum, skólasafni, heima eða hjá vinum og ættingjum.
Fimmtudaginn 17. nóv. keppa 6. RH gegn 6. SÓ. Mánudaginn 21. nóv. kl. 14:00 keppa 6. EÓ gegn 5. KP og klukkan 15:00 7. JÞS gegn 7. EJ. Athugið að 22. nóv. verður einnig keppt tvisvar klukkan 14:00 en seinni keppnin hefst kl. 15:00. Þá keppa 5. GK og þau lið sem komast upp úr þriðju umferð. Lokaúrslit fara síðan fram 30. nóv. kl. 17:00 á sal.
Gangi ykkur vel
Umsjónarkennarar miðstigs og forstöðumaður skólasafns Álfhólsskóla (Hjalla)