Góðgerðarvikan 2025

Í tilefni af degi mannréttinda barna þann 20.nóvember ætla nemendur í Álfhólsskóla að hafa góðgerðarviku vikuna 17.-21.nóvember.

Föstudaginn 21.nóvember verður opið hús þar sem ýmiss varningur og veitingar verða til sölu. Húsið verður opið frá kl.8:30-10:00 þar sem öll eru velkomin að kíkja í heimsókn og vonandi leggja sitt af mörkum í að styrkja gott málefni. Markaðurinn verður í salnum í Digranesi, salnum í Hjalla og í unglingarýminu.

Posted in Fréttir.