Í gær var bangsadagur í Álfhólsskóla og því máttu nemendur og starfsfólk koma með bangsann sinn í skólann. Margir nýttu sér það og voru bangsarnir hæstánægðir með að fá að sjá skólann okkar. Mikið var spáð og spekúlerað um útlit og persónuleika bangsanna. Vonum við að á næsta ári verði annar bangsadagur sem er náttúrulega bara skemmtileg tilbreyting í skólastarfið. Hérna eru nokkrar myndir af bangsadeginum.