Bekkjarstarfið
Í Handbók foreldrafélaga grunnskóla er kynnt hvernig setja má upp bekkjardagskrá fyrir veturinn. Inn á dagskrána eru settir viðburðir sem bekkjarfulltrúar hafa umsjón með, viðburðir á vegum foreldrafélagsins o.fl.
Sjá nánar hér á bls. 30.
Hugmyndir að viðburðum:
Í skólanum | Utan skólans |
Hefðbundið bekkjarkvöld með leikjum og bakkelsi | Fleyta flöskubátum niður Kópavogslækinn |
Spilakvöld | Sundferð |
Bingó | Skautaferð |
Diskótek | Fjöruferð í Kópavoginn |
Smákökubakstur fyrir jólin | Ratleikur og grillað í Guðmundarlundi |
Baka pizzu og borða saman | Ratleikur í hverfinu |
Piparkökumálun | Á slóðir landnámsmanna í Kópavogi |
Föndur | Fara upp í Hallgrímskirkjuturn |
Skemmtilegur fyrirlestur | Viðeyjarferð |
Feðgakvöld/mæðgnakvöld | Keila |
Jól í skókassa | Lasertag |
Kvöldvaka með leikriti, bröndurum o.fl. | Leikhúsferð, kíkt á bak við tjöldin |
Óvissuferð |
Spyrja krakkana hvað þau vilja gera
Allir bekkir í árgangi gerið eitthvað saman.
Passa foreldralaus boð.
Hvetja foreldra til að hittast um leið, t.d. með því að láta alla koma með eitthvað á hlaðborð. Þeir geta síðan spjallað meðan krakkarnir gera e-ð saman
Fleiri hugmyndir eru vel þegnar – hafið samband
Einnig lýsing/nánari útfærsla á viðburðum.