Í upphafi hvers skólaárs halda umsjónarkennarar bekkjarfundi með nemendum sínum og útbúa í sameiningu bekkjarreglur sem taka mið af skólareglum og skólamenningu.
Við berum öll ábyrgð á að fara eftir reglum skólans. Brjóti nemandi skólareglur og/eða hegðun hans óviðunandi fylgir skólinn verklagsreglum um ferli vegna slíkrar hegðunar.
Spjaldtölvureglur
Allir bekkir, árgangar eða stig setja sér reglur um notkun og meðferð á spjaldtölvum.
Auk þess gildir almennt:
- Nemendur koma með spjaldtölvur lokaðar
í upphafi kennslustunda. - Kennarar stjórna hvaða smáforrit eru notuð
í kennslustundum. - Nemendur hafa spjaldtölvur lokaðar á meðan
þeir ganga. - Engar spjaldtölvur í matsal.
Um viðurlög við brot á reglum um notkun á spjaldtölvum vísast til viðlaga um brot á skólareglum.
Aðgerðir og viðurlög við brotum á skólareglum eða óviðunandi hegðunar
Vísað er til reglugerðar nr. 1040/2011.
Í almennum aðgerðum felst að:
- fylgja vel eftir þeim kröfum sem gerðar eru til nemenda
- sýna nemendum skilning, þolinmæði og sveigjanleika
- hvetja nemendur með jákvæðum hætti til þess að læra góð mannleg samskipti
- veita nemendum persónulega aðstoð
- gefa nemendum færi á að tjá sig og segja frá málsatvikum
- boða forráðamenn á upplýsingafund ef hegðun nemenda truflar skólastarf
Sértækar aðgerðir og viðurlög
Ávallt skal taka tillit til aðstæðna og þarfa nemenda og hafa samráð við forráðamenn.
Leggja skal áherslu á að leitað sé eftir samkomulagi og sáttaleiðum. Forráðamönnum skal ætíð og svo fljótt sem auðið er gerð grein fyrir brotum barna sinna á skólareglum. Gefa skal forráðamönnum kost á að tjá sig ef börn þeirra brjóta skólareglur.
- Gerist nemandi sekur um brot á skólareglum með einum eða öðrum hætti á starfsmaður að byrja á að ræða við hann og reyna með yfirvegun og samtali að stöðva hegðunina. Hann getur óskað eftir aðstoð hjá nálægum starfsmanni eða hringt í deildarstjóra (eða annan stjórnanda) eftir aðstoð.
- Valdi nemandi verulegri truflun og/eða gerist ítrekað brotlegur við gildandi skólareglur á:
- viðkomandi kennari að upplýsa forráðamenn og umsjónarkennara
- umsjónarkennari að meta mál nemandans, ræða einslega við hann og aðstoða hann við að bæta hegðun sína
- umsjónarkennari að upplýsa nemanda til hvaða úrræða verði gripið ef hegðunin endurtekur sig
- Ef nemandi lætur sér ekki segjast, má vísa honum úr tíma og inn til stjórnenda. Deildarstjóri getur svo boðað hann, umsjónarkennara og forráðamenn hans í viðtal.
- Verði enn ekki breyting til batnaðar skulu kennarar leita aðstoðar lausanateymis skólans.
- Ef aðgerðir lausnateymis bera ekki árangur getur umsjónarkennari vísað málinu til nemendaverndarráðs.
- áðurnefndar aðgerðir bera ekki árangur getur skólastjóri vísað máli nemanda til fræðsluyfirvalda og/eða barnavernd.
- Ef ástundun/skólasókn nemanda er verulega áfátt skal umsjónarkennari vísa máli hans til nemendaverndarráðs.
Gerist nemandi sekur um alvarlegt brot á reglum skólans og/eða landslögum hvar sem hann er staddur á vegum skólans skal ávallt hafa samráð við forráðamenn og búa nemanda undir að hann verði sendur heim á kostnað forráðamanna.
Nemendur og forráðamenn þeirra eru ábyrgir fyrir því tjóni sem nemendur kunna að valda á eigum skólans, starfsfólks eða skólafélaga sinna. Kennarar skulu skrá mál samkvæmt verklagsreglum skólans.