Lög Foreldrafélags Álfhólsskóla

Lög Foreldrafélags Álfhólsskóla
Samþykkt á aðalfundi Foreldrafélags Álfhólsskóla 17. maí 2011

1. grein

Félagið er foreldrafélag Álfhólsskóla. Félagar teljast allir foreldrar/forráðamenn nemenda skólans.

2. grein

Markmið félagsins er að:

  • Vera samstarfsvettvangur foreldra sem eiga börn í skólanum.
  • Efla og tryggja gott samstarf foreldra og starfsfólks skólans.
  • Styðja heimili og skóla við að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði.
  • Koma á framfæri og fylgja eftir sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál.
  • Standa vörð um réttindi barna til mennta og aukins þroska.

3. grein

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:

  • Skipuleggja og halda utan um starf bekkjafulltrúa í hverjum bekk.
  • Koma á umræðu- og fræðslufundum um uppeldis- og skólamál.
  • Kjósa fulltrúa í skólaráð samkvæmt reglum félagsins.
  • Standa að upplýsingamiðlun til foreldra með útgáfu fréttabréfs. Halda úti svæði foreldrafélagsins á heimasíðu Álfhólsskóla þar sem birtar eru fundargerðir og annað sem tengist starfsemi félagsins.
  • Veita skólayfirvöldum lið svo að aðstæður til náms og félagslegra starfa verði sem bestar.
  • Styðja og efla hverja þá starfsemi sem stuðlar að auknum þroska nemenda og eflir forvarnarstarf í samfélaginu.
  • Taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög, svæðisráð og landssamtök foreldra.

4. grein

Stjórn félagsins skipa sjö foreldrar/forráðamenn, þar af einn sem einnig er fulltrúi foreldra í skólaráði. Formaður skal kosinn til eins árs í senn. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára og skipta með sér öðrum stjórnarstörfum. Sitjandi formanni er heimilt að bjóða sig fram til endurkjörs, þó ekki oftar en 3 sinnum. Auk formanns skal stjórnin skipuð varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varamenn í stjórn eru 3 og kjörnir á hverju ári. Stefnt skal að því að ekki gangi fleiri en fjórir úr stjórn í einu. Miðað skal við að enginn stjórnarmaður sitji lengur í stjórn en 4 ár.

5. grein

Bekkjarfulltrúar starfa á vegum foreldrafélagsins sem setur þeim starfsreglur. Bekkjarfulltrúar ásamt fulltrúum foreldra í skólaráði og stjórn mynda fulltrúaráð foreldrafélagsins. Hlutverk bekkjarfulltrúa er að efla og styrkja samstarf foreldra og barna. Hann leitast við að treysta samband heimilis og skóla innan hverrar bekkjardeildar með nánu samstarfi við umsjónarkennara. Stjórn foreldrafélagsins ber ábyrgð á að í hverjum bekk séu kosnir að lágmarki tveir bekkjarfulltrúar og einn til vara. Bekkjarfulltrúar eru kosnir til tveggja ára í senn en einungis kosinn einn bekkjarfulltrúi ár hvert svo að báðir hætti ekki á sama tíma. Í fyrsta bekk er einn eða tveir kosnir til tveggja ára og einn til eins árs til að stuðla að því að koma þessari reglu á.

6. grein

Aðalfundur skal haldinn í maí ár hvert og til hans boðað með tölvupósti eða sambærilegum hætti með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Í fundarboði skal kynna efni fundarins.

Verkefni aðalfundar:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar
  • Skýrslur nefnda
  • Lagabreytingar
  • Reikningar lagðir fram til samþykktar
  • Árgjald félagsins ákveðið
  • Kosning formanns foreldrafélags
  • Kosning annarra stjórnarmanna
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  • Skýrsla skólaráðsfulltrúa
  • Kosning fulltrúa foreldra í skólaráð
  • Önnur mál

7. grein

Stjórn foreldrafélagsins getur skipað nefndir um afmörkuð verkefni. Stjórnin ber ábyrgð á störfum nefnda og lætur þeim í té starfslýsingu.

8.grein

Stjórnarmenn skulu skipta með sér að vera tengiliðir við skólastigin þrjú; einn fyrir yngsta stig, annar fyrir miðstig og þriðji fyrir elsta stig.

9. grein          

Fulltrúaráðið skal koma saman tvisvar á skólaárinu og oftar ef þurfa þykir. Fyrsti fundur skal haldinn í upphafi skólaárs. Stjórn félagsins undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í bekkjardeildum og verkefni skólaráðs. Fulltrúaráð skal aðstoða stjórn félagsins í stærri verkefnum.

10. grein

Stjórn foreldrafélagsins hefur ekki afskipti af vandamálum er upp kunna að koma á milli einstakra foreldra, nemenda og starfsmanna skólans.

11. grein

Foreldrar greiða framlag til félagsins. Þetta framlag er innheimt árlega og ákveðið á aðalfundi.

12. grein

Ef um er að ræða sameiningu skólans við annan skóla renna eignir félagsins til uppbyggingar foreldrastarfs innan sameinaðs skóla. Sé skólinn endanlega lagður niður renna eignir foreldrafélagsins til foreldrastarfs innan annarra grunnskóla sveitarfélagsins. Við slíkar aðstæður skal ákvörðun um slit félagsins tekin með einföldum meirihluta á stjórnarfundi.

13. grein

Lögum þessum má breyta með einföldum meirihluta á aðalfundi, enda sé lagabreytinga getið í fundarboði.

 

Samþykkt á aðalfundi Foreldrafélags Álfhólsskóla 17. maí 2011

Posted in Stjórnun foreldrafélagsins.