Upplýsingar vegna verkfalla og COVID-19
Ef verkfall starfsmanna í Eflingu er enn í gildi þriðjudaginn 10. mars:
- Nemendur verða að koma með nesti að heiman vegna morgunhressingar, hádegismatar og Frístundar.
- Vegna smithættu þurfa börn að taka með sér öll áhöld að heiman. Mjög gott ef nemendur geta verið með sinn brúsa undir vatn og mikilvægt að merkja hann.
- Nesti verður borðað í kennslustofum/matsal eftir aðstæðum.
- Matarafgangar og umbúðir verða að fara heim með nemendum.
- Stuðningsfulltrúar, kennarar og skólastjóri sinna gæslu í útifrímínútum.
- Meta þarf stöðuna í þeim stofum sem Frístund notar og það gæti komið til lokunar með skömmum fyrirvara.
- Haft verður samband við Heilbrigðiseftirlitið til að fá úttekt á skólahúsnæðinu ef verkfall dregst.
Vegna COVID-19
- Þjónustusími landlæknis er 1700.
- Mikilvægt er að foreldrar barna með undirliggjandi sjúkdóma fái ráðleggingar um skólasókn í þjónustusíma landlæknis.
- Fjölskyldur sem eru að koma úr fríi erlendis frá verða að fylgja öllum fyrirmælum landlæknisembættisins.
- Verið er að skoða möguleika á fjarkennslu fyrir þá nemendur sem lenda í sóttkví eða einangrun.
- Alla afgreiðslu á mat þarf að endurskipuleggja með tilliti til smithættu. Það verður gert eftir að verkfall leysist.