Menntaráð Kópavogs auglýsir eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf í grunnskólum Kópavogs.
Viðurkenningar verða veittar fyrir 3 – 5 verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun innan skólanna. Með því er átt við nýjungar í skólastarfi eða þróunarverkefni sem fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skólastarfi. Auk þess er æskilegt að verkefnið sýni:
– að það hefur verið unnið af frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð.
– að það hafi leitt til umbóta og/eða framfara í skólastarfi.
– að það feli í sér hvatningu til eftirbreytni innan viðkomandi skóla og utan.
Skriflegar tilnefningar skulu berast rafrænt á sérstöku eyðublaði til grunnskóladeildar Kópavogs til hekla@kopavogur.is eigi síðar en 27. apríl 2018.