
Lagt var af stað upp úr kl. 12 og fylgdi hver umsjónakennari sínum bekk niður í dal en eftir það fór hver og einn á sínum hraða. Gengið var um gangbraut neðan Hjallakirkju og þar voru starfsmenn til aðstoðar. Eftir hlaup var boðið uppá ávexti og klakavatn í matsölum skólans og var merkt við nemendur á yngsta- og miðstigi. Nemendur á elsta stigi voru ekki skyldugir til að skila sér upp í skóla að hlaupi loknu heldur var þeim heimilt að fara beint í helgarfrí. Að þessu sinni ætlar Altis að draga út þrjá skóla sem ljúka hlaupinu fyrir 30. september og veita þeim 100.000, kr. inneign sem nýtist þeim til leiktækjakaupa.
Foreldrar voru velkomnir með í hlaupið/gönguna ekki síst þar sem Hreyfivika UMFÍ er í fullum gangi. Veðrið lék við okkur og voru allir hressir af útiverunni. Hér eru nokkrar myndir úr hlaupinu 🙂