Saman í sátt dagurinn var haldinn í Álfhólsskóla síðasta miðvikudag. Eins og venja hefur verið þá hittust vinabekkirnir og unnu saman. Á dagskránni var söngur, jólaföndur og þægileg stund hjá okkur öllum. Dagurinn tókst með ágætum og voru nemendur sem aðrir ánægðir með hann. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru á deginum okkar.