5. bekkur hélt sýningu í salnum í Hjalla í dag. Þema sýningarinnar var Landnámið. Leikendurnir gáfu okkur innsýn inn í líf landnámsmannanna er þeir sigldu til Ísland, hvernig þeir komust af á Íslandi o.fl. Nemendur úr öðrum list- og verkgreinum sýndu hluti sem þeir höfðu gert og boðið var upp á lummusmakk í heimilisfræðinni. Frammistaða leikenda var mjög góð og allir höfðu gaman að. Hérna eru myndir frá sýningunni.