Sýning 5. bekkinga á leikritinu um Landnámið tókst með ágætum í dag. Náði hópurinn að skapa mjög fjölbreytt heilstætt leikrit. Krakkarnir voru mjög virkir og tónlistin tónaði undir. Ýmis leikhljóð, dansar og lög voru frumflutt og vorum við gestir á sýningunni mjög ánægð með afraksturinn. Margir þáðu boð á sýninguna s.s. foreldrar, 4. bekkingar og fleiri starfsmenn skólans.
Einnig var þarna sýning á verkum nemenda úr smíðum, textil, myndmennt og svo voru bakaðar lummur frá landnámstímanum í heimilisfræði. Hér eru myndir sem teknar voru á sýningunni.