Kópurinn, viðurkenning menntaráðs

Kópurinn, viðurkenningar menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf í Kópavogi, var veittur við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Álfhólsskóla-Hjalla fimmtudaginn 12. maí. Sex frábær verkefni sem sýna glöggt fjölbreytni í skólastarfi bæjarins hlutu viðurkenningu.
 
Það gleður okkur að segja frá því með stolti að
Anna Pála Gísladóttir í Álfhólsskóla var ein þeirra sem fékk viðurkenningu fyrir verkefni sitt Núvitund og slökun sem er valverkefni og hluti af lífsleikninámi.
 
Einnig fékk verkefnið Ferðaþjónusta í 6.bekk tilnefningu.
 
Við erum afar stolt af þeirri skólaþróun sem á sér stað í Álfhólsskóla og erum kennurum þakklát fyrir þeirra framlag.
Posted in Fréttir.