Skólabyrjun haustið 2017

Álfhólsskóli vill þakka nemendum, foreldrum, starfsfólki og velunnurum fyrir gott samstarf á þessu skólaári. Skrifstofa skólans opnar eftir sumarfrí þriðjudaginn 8. ágúst.
Þriðjudaginn 22. ágúst fer fram skólasetning og kynning á starfi vetrarins fyrir nemendur og foreldra í 2. – 10. bekk.
Þriðjudaginn 22. ágúst er jafnframt skólaboðun hjá 1. bekk þar sem foreldrar og nemendur 1. bekkjar verða boðaðir til viðtals við umsjónarkennara á tímabilinu kl. 8 – 14.
Formleg skólasetning fyrir 1. bekk verður miðvikudaginn 23. ágúst kl. 8:10 í salnum í Digranesi.

Skólasetning einstakra bekkja þriðjudaginn 22. ágúst verður sem hér segir:
kl. 8:15. – 2. bekkur – Skólasetning og kynning(ar) Digranes

kl. 8:45. – 3. bekkur – Skólasetning og kynning(ar) Digranes
kl. 9:15. – 4. bekkur – Skólasetning og kynning(ar) Digranes
kl. 10:00. – 8. – 10. bekkur – Skólasetning og kynning(ar) Hjalli
kl. 10:30. – 7. bekkur – Skólasetning og kynning(ar) Hjalli
kl. 11:00. – 6. bekkur – Skólasetning og kynning(ar) Hjalli
kl. 11:30. – 5. bekkur – Skólasetning og kynning(ar) Hjalli

Vakin er athygli á því að sérstakir kynningarfundir verða haldnir fyrir nemendur og foreldra í:

5. bekk þriðjudaginn 29. ágúst kl. 17:30 í Hjalla.
1. bekk miðvikudaginn 30. ágúst kl. 17.30 í Digranesi
8. bekk þriðjudaginn 5. september kl. 17:30 í Hjalla.
Posted in Fréttir.