Öskudagurinn í Álfhólsskóla

Nemendur og starfsfólk skólans tóku virkan þátt í Öskudagsgleðinni.  Í Digranesi slógu yngri nemendur köttinn úr tunnunni, miðstigið fjölmennti í íþróttahúsið þar sem Kasper, Jesper og Jónatan héldu uppi fjörinu í leikjum og þrautum.  Unglingastigið var í Hjalla með furðuleika þar sem nemendur öttu kappi í Limbó, teygjubyssuskotfimi ásamt ýmiskonar áti og keppni.  Myndirnar sýna að það hefur nú ekki verið leiðinlegt en vissulega góð tilbreyting í skólanum þennan ágæta dag.  Hér eru myndir úr Digranesi og aðrar úr Hjalla.
Posted in Eldri fréttir.