Leiksýningin Egla

Kæru aðstandendur nemenda í fimmta bekk. Næsta mánudag, þann 18. febrúar, bjóðum við ykkur í heimsókn. Nemendur í leiklistar- og tónlistarsmiðjum sýna leikritið Eglu sem byggt er á Egilssögu. Þetta er fjórða sýning okkar í vetur. Hún hefst í salnum klukkan 8:40. Þið eruð velkomin strax klukkan 8:10 því það verður opið hús í list- og verkgreinastofunum þar sem hægt er að fylgjast með vinnu barnanna. Aðstandendum verður boðið upp á lummur í heimilisfræði eftir sýninguna.
Nemendur verða áfram með sínum list- og verkgreinakennurum.

Hlökkum til að sjá ykkur.
Bestu kveðjur,
List – og verkgreinakennarar.

Posted in Fréttir.