jolaleikrit5b

Leikur, söngur, ísbjörn og loftsteinn.

jolaleikrit5bJólaleikrit í landnámstíl var sýnt í gær hjá 5. bekk.  Sýningin var mjög fjörug og kenndi þar margra grasa.  Til að mynda komu ísbjörn og loftsteinn inn í atburðarásina.  Eins og fyrr stóðu leikarar og hljóðfæraleikarar sig frábærlega.  Leikhópurinn samdi handritið og leikhljóðin komu úr tónmenntahópi.  Lummubakstur heimilisfræðinnar stóð einnig fyrir sínu en foreldrum var boðið í veislu eftir sýninguna. Nemendur úr textil sáu um búninga og smíðahópur sýndu sín verk.  Leikmyndin var unnin í myndmennt.  Hér eru myndir úr þessari frábæru sýningu.

http://www.flickr.com/apps/slideshow/show.swf?v=109615

Posted in Fréttir.