Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins óháð menningarlegum bakgrunni. Skólinn leggur áherslu á velferð nemandans og að hver og einn nái að eflast og þroskast út frá eigin forsendum.
Álfhólsskóli leggur áherslu á gott og náið samstarf við foreldra um velferð nemenda.
Hlutverk, gildi og framtíðarsýn
Hlutverk
Hlutverk Álfhólsskóla er að búa nemendur undir þátttöku í lýðræðissamfélagi í námsumhverfi sem stuðlar að sjálfstæði og þroska einstaklingsins.
Gildi
Álfhólsskóli hefur þrjú megingildi að leiðarljósi:
Menntun – Sjálfstæði – Ánægja
Menntun
Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins óháð menningarlegum bakgrunni.
Sjálfstæði
Í Álfhólsskóla er lögð áhersla á að nemendur séu sjálfstæðir, sýni frumkvæði, ábyrgð og setji sér raunhæf markmið.
Ánægja
Í Álfhólsskóla er skólabragur sem einkennist af ánægju, leik og vellíðan.
Framtíðarsýn
Álfhólsskóli verður meðal fremstu grunnskóla landsins. Álfhólsskóli tekur vel á móti öllum nemendum og einsetur sér að útskrifa fróðleiksfúsa, virka og ánægða þjóðfélagsþegna með trú á eigin hæfileika og getu. Samskipti heimila og skóla eru góð og einkennast af gagnkvæmri virðingu. Í Álfhólsskóla starfar samhentur hópur áhugasamra og hæfileikaríkra starfsmanna með fjölbreytta og faglega þekkingu.
- Álfhólsskóli tryggir að öllum nemendum líði vel jafnt í leik og starfi. Þeir fái kennslu við hæfi hvers og eins og nái hámarksárangri miðað við færni og getu. Nemendur verði ábyrgir, sjálfstæðir í vinnubrögðum og öðlist jákvæða sjálfsmynd.
- Álfhólsskóli leggur áherslu á gott samstarf foreldra, nemenda og starfsfólks. Skólinn veitir faglega þjónustu og er með virkt og vel skipulagt stoðkerfi. Foreldrar eru ávallt velkomnir í Álfhólsskóla til að kynna sér innra starf hans. Skólinn veitir góðar upplýsingar um starfið.
- Álfhólsskóli leggur áherslu á að efla læsi, lestur og samvinnu nemenda þvert á árgang og stig í gegnum öfluga teymiskennslu og frjótt lærdómsumhverfi fyrir kennara. Samvinna kennara í teymi er góð fyrirmynd fyrir nemendur.
- Álfhólsskóli veitir starfsmönnum sínum góða starfsaðstöðu, gott vinnuumhverfi og hvatningu í starfi. Skólinn tryggir starfsmönnum sínum tækifæri til starfsþróunar og endurmenntunar. Álfhólsskóli er vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi, byggður á mikilli samvinnu og upplýsingamiðlun starfsfólks.
- Álfhólsskóli leggur áherslu á gott samstarf við skóla, félög og stofnanir.
- Skólinn er umhverfisvænn skóli sem starfar í anda Grænfánans og sjálfbærrar þróunar. Álfhólsskóli er fyrirmynd annarra skóla í Kópavogi varðandi vistvæna starfshætti og umhverfisvernd.