Pegasus

Félagsmiðstöðin Pegasus er starfrækt allt skólaárið og er undir stjórn Frístundadeildar hjá Kópavogsbæ. Félagsmiðstöðin er staðsett í Álfhólsskóla Hjallamegin. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða upp á markvisst frístunda- og forvarnarstarf undir handleiðslu fagfólks. Lögð er áhersla á lýðræði, virka þátttöku, uppbyggingu sjálfsmyndar, ánægju og gleði. Í félagsmiðstöðinni er bæði boðið upp á opið starf og hópastarf, sem miða bæði að því að stuðla að auknum félagsþroska, samskiptahæfni, þátttöku og ábyrgð.

Opnunartími er breytilegur:

Kvöldopnanir

Mánudagar; 17:00-22:00
Miðvikudagar 17:00-22:00
Annan hver föstudagur 19:30-23:00

Auk þess eru dagopnanir skipulagðar eftir viðverutíma forstöðumanns og starfsfólks. Yfir sumartímann er opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 17:00-22:00, auk dagopnanna.

Félagsmiðstöðin heldur úti Instagram síðu sem við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til þess að skoða og fylgja https://instagram.com/felagsmidstodinpegasus . Þar koma inn allar auglýsingar um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar og þar er auðvelt að fylgjast með hvað er að gerast hverju sinni.

Einnig má sjá dagskrá mánaðarins með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

Forstöðumaður: Nikulás Árni Þorkelsson
Gsm: 696-1622. Netfang: nikulasarni@kopavogur.is