Leyfisbeiðnir

Til upplýsinga: Í 19. gr. laga um grunnskóla frá 2008 stendur:

„Foreldrar bera ábyrgð á námi barna sinna og ber þeim að fylgjast með námsframvindu þeirra í samvinnu við þau og kennara þeirra. Foreldrar skólaskylds barns bera ábyrgð á að það innritist í skóla þegar það kemst á skólaskyldualdur og sæki skóla“.

Þegar grunur vaknar um ófullnægjandi skólasókn skal skoða tilkynningar um veikindi og leyfi. Miðað er við viðbrögð vegna ófullnægjandi skólasóknar, sjá hér, og stuðst við viðmið um fjölda veikinda- og/eða leyfisdaga við hvert þrep.

Jafnframt er mikilvægt að viðbrögðin séu áætluð út frá stöðu hvers nemanda og að ávallt sé leitað eftir stuðningi frá Menntasviði Kópavogsbæjar og/eða Barnavernd Kópavogsbæjar sé talin þörf á því.

Hægt er að skrá forföll í gegnum Mentor, annars vegar veikindi og hins vegar leyfi fyrir stakar kennslustundir. Beiðni um lengra leyfi þarf að fara í gegnum Þjónustugátt Kópavogs hér.