Áfallaáætlun

Áfallaráð Álfhólsskóla

Í áfallaráði sitja:

  • Skólastjóri
  • Aðstoðarskólastjóri
  • Deildarstjórar
  • Námsráðgjafar
  • Skólahjúkrunarfræðingar
  • Skólasálfræðingar

Sóknarprestur er áfallaráði til ráðgjafar og aðstoðar.

Skólastjóri eða staðgengill skólastjóra er ábyrgur fyrir því að kalla saman áfallaráð og stýra vinnu þess og skipulagi.

Hlutverk áfallaráðs

Hlutverk áfallaráðs er

  • Að hafa verkstjórn við válega atburði,
  • Að útbúa vinnuáætlanir um hlutverkaskipan hverju sinni, í hvaða röð og hvernig bregðast skuli við í hverju tilviki fyrir sig.

Mikilvægt er að huga að óskum þeirra fjölskyldna sem hlut eiga að máli hverju sinni. Áfallaráð skal:

  • Sjá til þess að allt starfsfólk fái kynningu á því hvernig bregðast skuli við áföllum.
  • Sjá til þess að kennarar fá stuðning og hjálp.
  • Funda eins fljótt og auðið er ef áfall hefur orðið, óháð dagsetningu og tíma.

Áfallaráð fundar í byrjun hvers skólaárs og fer yfir hvort breytingar hafi orðið á aðstæðum nemenda, starfsmanna vegna alvarlegra slysa, veikinda, dauðsfalla eða annarra áfalla. Áfallaráð ræðir þá þau áföll sem upp hafa komið og tekur ákvörðun um hvort og þá til hvaða aðgerða skuli grípa.

Ef alvarlegt áfall á sér stað í sumarleyfi er nauðsynlegt að skólastjóri kalli áfallaráð saman til að það geti tekið ákvörðun um viðbrögð af skólans hálfu.

ATHUGIÐ:
Skólastjóri er alltaf eini tengiliður skólans við fjölmiðla. Aðrir hafa ekki leyfi til að gefa fjölmiðlum upplýsingar og skulu alltaf vísa á skólastjóra

Skilgreining á áföllum

Áföll eru skilgreind sem:

  • Alvarleg slys (nemenda, starfsmanns eða aðstandenda nem. og starfsmanns).
  • Alvarleg veikindi (nemenda, starfsmanns eða aðstandenda nem. og starfsmanns).
  • Langvinnir sjúkdómar (nemenda, starfsmanns eða aðstandenda nem. og starfs-manns).
  • Andlát (nemenda, starfsmanns eða aðstandenda nem. og starfsmanns

Nemendur

Slys á nemendum

Ef slys ber að höndum á að fylgja sem best almennum reglum um skyndihjálp.

Ef talið er að nemandi hafi slasast alvarlega ber fyrst að meta hvort færa megi nemanda til. Ef vafi leikur á því er beðið um sjúkrabíl strax. Hjúkrunarfræðingur eða skólastjórnendur eru látnir vita. Haft er samband við foreldra.

Þó ekki sé um stórslys að ræða á að meta hvort nemandi þurfi á læknishjálp að halda. Sé svo þarf að sjá til þess að nemandi sé í umsjón fullorðins þar til náðst hefur í foreldri, eða ef ekki næst í foreldri, að senda hann með starfsmanni skólans á Heilsugæslustöð Kópavogs eða Slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss.

Í báðum tilvikum þarf að fá beiðni hjá skólastjóra fyrir greiðslu á fyrstu heimsókn. Beiðnina má nálgast hjá ritara. Skólastjórnendur þurfa að vita um öll meiðsli á nemendum og að sjálfsögðu einnig skólahjúkrunarfræðingur sem skráir öll meiðsli.

Mikilvægt er að öll slys séu skráð með formlegum hætti.

Alvarleg slys á nemanda

Ef alvarlegt slys á nemanda verður í skólanum:

  1. Þeir sem að koma hringja eftir sjúkrabíl og veita fyrstu hjálp. Ekki má skilja nemanda eftir einan undir neinum kringumstæðum.
  2. Fulltrúi áfallaráðs hefur samband við forráðamenn og lögreglu sem allra fyrst.
  3. Áfallaráð fundar og ákveður hvernig bregðast skuli við.
  4. Fulltrúi áfallaráðs og umsjónarkennari ræða við nemendur í einstaka bekkjum sem tengjast málinu.
  5. Starfsfólki og nemendum er greint frá slysinu eins fljótt og auðið er. Í mjög alvarlegum tilfellum þarf að kalla allt starfsfólk saman til fundar þar sem farið er yfir staðreyndir málsins.
  6. Skólastjórnendur reyna að koma í veg fyrir það að nemendur eða starfsfólk fari heim með rangar eða misvísandi upplýsingar um málið. Í því sambandi gæti þurft að senda bréf heim með nemendum eða hringja í hvert og eitt heimili.
  7. Sýni fjölmiðlar málinu áhuga, er skólastjóri eða staðgengill hans eini tengiliður við þá. Allir aðrir skulu, án undantekninga, vísa á þá.

Athugið að aðgerðir skólans þarf að bera undir viðkomandi forráðamenn til samþykkis og þeir þurfa að vera með í ráðum frá upphafi.

Ef slys verður utan skólatíma

Áfallaráð fundar þegar vitneskja fæst um málið og ákveður hvernig bregðast skuli við.

Viðkomandi starfsfólki og bekkjarfélögum er tilkynnt um slysið.

Næstu dagar

  1. Ört upplýsingastreymi til skólans er mikilvægt.
  2. Umsjónarkennari sér um að koma upplýsingum til nemenda.
  3. Fulltrúi áfallaráðs eða umsjónarkennari athuga hvort heimsóknir til viðkomandi séu mögulegar eða heppilegar.
  4. Sýna verður atburðinum virðingu, án þess að velta sér upp úr honum, m.a. getur bekkurinn sent kveðju.

Þegar nemandi kemur aftur í skólann:

  1. Umsjónarkennari, ásamt fulltrúa úr áfallaráði, ræða við nemandann áður en hann kemur aftur í skólann og hlustar eftir því hvernig honum líður og hverju hann kvíðir.
  2. Umsjónarkennari, í samráði við áfallaráð, undirbýr bekkinn undir það hvernig taka skuli á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann, góður undirbúningur getur auðveldað nemandanum endurkomuna.
  3. Umsjónarkennari fylgist sérstaklega með viðkomandi nemanda næstu vikur.

Langvinnir sjúkdómar /alvarleg veikindi

  1. Viðkomandi starfsfólki og bekkjarfélögum er greint frá því ef nemandi þarf að vera langdvölum burt frá skóla vegna alvarlegra veikinda sem geta leitt til dauða.
  2. Áfallaráð ákveður hvernig taka skuli á náminu og metur hve mikið vinna skal með viðkomandi bekki.
  3. Fulltrúar áfallaráðs ásamt umsjónarkennara ræða við og vinna með nemendum í einstaka bekkjum sem tengjast málinu eftir aðstæðum.
  4. Sýna skal atburðinum virðingu án þess að velta sér upp úr honum, m.a. getur bekkurinn sent kveðju.
  5. Athugið að allar aðgerðir skólans þarf að bera undir viðkomandi forráðamenn til samþykkis og þeir þurfa að vera með í ráðum frá upphafi.

Þegar nemandi kemur aftur í skólann:

  1. Undirbúa þarf bekkjarfélaga undir það hvernig taka skuli á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann, það getur auðveldað viðkomandi endurkomuna.
  2. Umsjónarkennari og aðili úr áfallaráði ræða við nemandann áður en hann kemur í skólann og hlusta eftir því hvernig honum líður og hverju hann kann að kvíða.
  3. Umsjónarkennari fylgir viðkomandi nemanda sérstaklega eftir næstu vikur.

Andlát nemanda

  1. Skólastjóri aflar staðfestra upplýsinga um atburðinn og hefur samband við viðkomandi heimili.
  2. Skólastjóri kallar saman áfallaráð og sóknarprest, óháð tíma og dagsetningu. Á þeim fundi ákveður áfallaráð fyrstu viðbrögð skólans og skiptir með sér verkum. Athugið að allar aðgerðir skólans þarf að bera undir viðkomandi forráðamenn til samþykkis og þeir þurfa að vera með í ráðum frá upphafi.
  3. Ganga þarf úr skugga um að náin skyldmenni hins látna, sem eru við nám eða störf við skólann, fái fréttirnar sérstaklega en ekki í stórum hópi.
  4. Skólastjóri, umsjónarkennari og sóknarprestur tilkynna andlátið strax í viðkomandi bekkjardeild. Hlúð er að nemendum með aðstoð hjúkrunarfræðings, námsráðgjafa og sálfræðings (kveikt á kerti, prestur aðstoðar nemendur við stutta bæn).
  5. Umsjónarkennarar tilkynna andlátið í öðrum bekkjardeildum og athuga skal að mikilvægt er að allir fái fréttirnar samtímis.
  6. Skólinn dregur fána í hálfa stöng þegar búið er að tilkynna nemendum andlátið.

Vinna í viðkomandi bekk sama dag:

  1. Umsjónarkennari verði með sínum bekk það sem eftir er af skóladegi.
  2. Hafa kerti logandi í kennslustofunni.
  3. Nemendum gefið tækifæri til að ræða atburðinn og tilfinningar sem gætu hafa kviknað í framhaldinu.
  4. Sérfræðingar skólans, sem og sóknarprestur, verði til taks ef á þarf að halda.
  5. Fulltrúi áfallaráðs eða umsjónarkennari viðkomandi bekkjar hringi heim og tilkynni foreldrum um atburðinn.
  6. Bréf sent heim með öllum nemendum skólans þar sem greint er frá atburðinum og því hvernig skólastarfið verði næstu daga.
  7. Ritara verði falið að kanna hverjir voru ekki mættir í skólann þennan dag og þeim tilkynnt um atburðinn sérstaklega.
  8. Í lok dagsins skal áfallaráð funda ásamt umsjónarkennara, fara yfir stöðuna og gera áætlun um áframhaldandi vinnu.
  9. Fulltrúar skólans fara í heimsókn til aðstandenda með samúðarkveðju næstu daga á eftir.

Vinna í viðkomandi bekk næstu daga á eftir:

  1. Umsjónarkennari tekur á móti bekknum næstu daga.
  2. Kveikt á kerti og það látið loga fram yfir jarðarför.
  3. Bekkurinn útbýr samúðarkveðju og/eða minningargrein. Einnig geta nemendur teiknað myndir, skrifað bréf, ljóð eða sögur og útbúið minningabók.
  4. Eigur látna nemandans eru fjarlægðar smátt og smátt úr skólastofunni og þess gætt að fjarlægja ekki allt í einu.
  5. Áfallaráð fái sóknarprest til að greina nemendum frá því sem gerist næstu daga, þ.e. kistulagning og jarðarför.
  6. Ef ákvörðun er tekinn í samráði við fjölskyldur viðkomandi, að nemendur verði við jarðarförina, þá þarf að undirbúa það vandlega í samráði við forráðamenn hvers nemanda sem og aðstandendur látna nemandans. Nauðsynlegt er að forráðamenn hvers nemanda fari með honum á jarðarförina. Sóknarprestur fenginn til að koma í bekkinn og útskýra hvernig athöfnin fer fram.
  7. Kennslustundir næstu daga verða að vera sveigjanlegar, ef spurningar vakna hjá nemendum, eða þeir sýna viðbrögð eins og reiði, sorg, sektarkennd o.s.frv. Mikilvægt er að leyfa börnum að tjá tilfinningar sínar og segja frá eigin reynslusögum.
  8. Skólastjórnendur, umsjónarkennari og þeir sem tengst hafa nemandanum verða við jarðarförina.

Til umhugsunar:

Gefið sorginni tíma.
Þegar frá líður þarf að muna eftir dagsetningunni.
Háttbundin hrynjandi skólastarfsins veitir öryggi og sefar ótta og kvíða.
Athugið að veita athygli umsjónarkennaranum sem þarf sjálfur stuðning og hjálp.

Aðstandendur

Alvarleg veikindi aðstandenda nemenda

  1. Skólastjóri eða umsjónarkennari fær staðfestingu á veikindunum hjá forráðamanni nemandans.
  2. Áfallaráð kemur upplýsingum til þeirra sem málið varðar.
  3. Nemendaverndarráð fundar um málið og ákveður í samráði við forráðamenn hvernig unnið skuli að málinu.

Andlát aðstandenda nemenda

  • Skólastjóri eða staðgengill hans aflar upplýsinga um atburðinn.
  • Áfallaráð tilkynnir umsjónarkennara nemandans um andlátið.
  • Áfallaráð fundar, auk sóknarprests, þar sem ákveðin eru fyrstu viðbrögð skólans.

Bera skal allar aðgerðir undir forráðamenn nemandans til samþykkis og mikilvægt er að hafa þá með í ráðum frá upphafi

  1. Skólastjóri, umsjónarkennari og sóknarprestur koma upplýsingum til bekkjarsystkina nemandans (ath. hvort náin skyldmenni séu við nám eða störf í skólanum, þau þarf að láta vita sérstaklega en ekki í hópi).
  2. Skólastjóri, umsjónarkennari og sóknarprestur tilkynna starfsfólki skólans um atburðinn. Athugið að allt starfsfólk fái fréttirnar (þeir sem eru fjarverandi, á útivakt o.s.frv.).
  3. Umsjónarkennari stjórnar áframhaldandi vinnu í bekknum og leitar aðstoðar hjá áfallaráði eftir þörfum.
  4. Bekkurinn útbýr samúðarkveðju.
  5. Skólastjóri sér um að senda samúðarkveðju frá skólanum til nemandans og fjölskyldu hans.
  6. Áfallaráð ákveður í samráði við fjölskyldu viðkomandi hvort fulltrúar skólans eða nemendur verði viðstaddir jarðarförina.
  7. Áfallaráð aðstoðar umsjónarkennara við að undirbúa bekkinn undir það hvernig tekið verði á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann, góður undirbúningur gæti auðveldað nemandanum endurkomuna.

Starfsfólk skólans

Alvarleg veikindi starfsmanns skólans
Skólastjóri og áfallaráð ákveða í samráði við viðkomandi starfsmann hvernig tilkynna skuli nemendum og öðru starfsfólki veikindin.

Alvarlegt slys starfsmanns skólans
Skólastjóri og áfallaráð ákveða í samráði við viðkomandi starfsmann og/eða aðstandendur hans hvernig tilkynna skuli nemendum og öðru starfsfólki veikindin.

Andlát starfsmanns

  1. Skólastjóri og áfallaráð leita staðfestra upplýsinga um andlátið.
  2. Skólastjóri og áfallaráð tilkynna starfsfólki um andlátið. Aðstoð prests er fengin ef þörf þykir. Athuga að náin skyldmenni látins starfsmanns, sem eru við störf í skólanum, fái fréttirnar sérstaklega en ekki í hópnum.
  3. Ritari veitir skólastjóra upplýsingar um allt starfsfólk sem er fjarverandi og skólastjóri tilkynnir þeim sérstaklega.
  4. Áfallaráð skipuleggur samverustund alls starfsfólks, ásamt sóknarpresti, samdægurs eða eins fljótt og auðið er.
  5. Áfallaráð ákveður hvernig tilkynna skuli nemendum um andlátið.
  6. Áfallaráð ákveður hvernig upplýsingum skuli komið til forráðamanna nemenda.
  7. Ef umsjónarkennari fellur frá, þá tilkynna skólastjóri og sóknarprestur þeim um andlátið.
  8. Fulltrúar frá áfallaráði veita umsjónarbekk stuðning og vinna með bekkinn næstu daga.
  9. Aðilar úr áfallaráði ræða við nemendur úr öðrum bekkjum eftir því sem þörf er á.
  10. Skólastjóri heimsækir nánustu aðstandendur.
  11. Skólastjóri, fyrir hönd skólans, sendir samúðarkveðju til nánustu aðstandenda. 

Andlát maka starfsmanns

  1. Skólastjóri leitar staðfestra upplýsinga um andlátið.
  2. Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið. Ritari veitir skólastjóra upplýsingar um starfsmenn sem eru fjarverandi og skólastjóri hefur sérstaklega samband við þá.
  3. Ef maki umsjónarkennara fellur frá, þá tilkynnir skólastjóri umsjónarbekk um andlátið.
  4. Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum skuli komið til forráðamanna nemenda.
  5. Fulltrúar áfallaráðs veita umsjónarbekk stuðning og vinna með bekkinn næstu daga.
  6. Fulltrúar áfallaráðs ræða við nemendur úr öðrum bekkjum eftir því sem þörf er á.
  7. Skólastjóri heimsækir viðkomandi starfsmann.
  8. Skólastjóri, fyrir hönd skólans, sendir starfsmanninum og fjölskyldu hans samúðarkveðjur.

Ferðalög
Verði alvarlegt slys eða dauðsfall á ferðalagi á vegum skólans, ber að fylgja eftirfarandi aðgerðalista:

  1. Hringt í 112.
  2. Lögregla lætur aðstandendur viðkomandi nemanda vita.
  3. Kennarar í forsvari fyrir nemendahópnum ákveða hver þeirra verður þeirra forsvarsmaður.
  4. Forsvarsmaður kennara lætur skólastjóra/áfallaráð vita af atburðinum.
  5. Áfallaráð og sóknarprestur ákveða hvernig aðstandendur viðkomandi skólafélaga eru látnir vita af atburðinum.
  6. Kennarar safna nemendahópnum saman. Nemendum er haldið saman og reynt að útskýra fyrir þeim eftir mætti hvað hefur gerst.
  7. Heimför er skipulögð eins fljótt og auðið er.
  8. Skólastjóri/áfallaráð lætur foreldra þeirra sem í ferðinni eru vita eins fljótt og auðið er.
  9. Áfallaráð tekur á móti nemendum þegar komið er í skóla, safnar þeim saman. Forráðamenn látnir sækja börn sín. Frekari vinna er skipulögð af áfallaráði og kennurum miðað við ofangreinda aðgerðalista fyrir slys og dauðsföll.

Athugið að allar aðgerðir skólans þarf að bera undir viðkomandi forráðamenn til samþykkis og þeir þurfa að vera með í ráðum frá upphafi.

Ef kalla þarf sjúkrabíl að skólanum

  1. Sá sem kallar til sjúkrabíl lætur ritara vita.
  2. Ritari kallar til húsvörð og skólastjórnendur.
  3. Húsvörður og skólastjórnendur skipuleggja aðkomu sjúkrabílsins, reyna að afmarka svæðið og huga að gæslu fyrir utan skólann ef þörf krefur.
  4. Ef frímínútur eru, er skólabjöllu hringt og nemendur kallaðir inn í skólann.