Stóra upplestrarkeppnin í 7.bekk

Í dag fór Stóra upplestrarkeppnin fram hér í skólanum. Nemendur í 7.bekk hafa æft sig mikið fyrir þennan viðburð og stóðu sig ótrúlega vel. Þau eiga öll mikið hrós skilið, bæði nemendur og kennarar. Á sviðinu voru 10 keppendur sem voru valdir fyrir hönd bekkjanna. Þau lásu bæði texta úr skáldsögunni Hetja  og eitt ljóð. Allir keppendur stóðu sig mjög vel og biðu spennt eftir niðurstöðum eftir að upplestri var lokið.

Á meðan dómararnir töluðu saman, lásu tveir nemendur úr 8. bekk ljóð fyrir okkur og að lokum spilaði einn nemandi á píanó. Þegar loks kom að niðurstöðunum, voru það Katrín Arna Þorgilsdóttir og Brynhildur Arna Magnúsdóttir sem voru valdar til að fara fyrir hönd Álfhólsskóla í Stóru upplestrarkeppnina, sem fer fram í Salnum Kópavogi þann 24.mars. Varamaður er Snædís Lilja Ólafsdóttir.  Það verður ótrúlega gaman að fylgjast með þeim áfram og hefst undirbúningur strax.

Posted in Fréttir.