Sumarlokun skrifstofu

Við óskum nemendum, foreldrum, starfsmönnum og öllum velunnurum skólans gleðilegs sumars og minnum á að skrifstofa skólans verður lokuð frá og með föstudeginum 20. júní. Við opnum aftur miðvikudaginn 6. ágúst.

Áríðandi skilaboð til skólans er hægt að senda á netfangið alfholsskoli@kopavogur.is og verður þeim svarað eins fljótt og unnt er.

Sumardvöl Frístundar opnar mánudaginn 11. ágúst fyrir þá nemendur verðandi 1.bekkjar sem hafa verið skráðir sérstaklega í sumardvöl á íbúagátt Kópavogs.

Nánari tímasetningar og upplýsingar um skólabyrjunina verða settar á heimasíðuna í byrjun ágúst.
Skóli hefst á ný mánudaginn 25.ágúst.

Posted in Fréttir.