Starfamessa Álfhólsskóla 2026 var haldin með pompi og prakt í morgun, 4.febrúar fyrir nemendur í 9. og 10.bekk.
Viðburðurinn, sem var í umsjón náms- og starfsráðgjafa skólans, var frábær í alla staði og gekk mjög vel fyrir sig! Viðburðurinn eflir enn frekar og styður við gott samstarf milli skólans og heimila, ásamt því að veita nemendum innsýn inn í ólík störf og menntunarmöguleika, sem nýtist þeim vonandi mjög vel í þeirra eigin vegferð og framtíð.
Þátttaka var gríðarlega góð. Glæsilegur hópur 23 þátttakenda, ásamt flottum fulltrúum frá Tækniskólanum og Landskrifstofu Erasmus+ tóku vel á móti nemendum og kynntu fyrir þeim störf sín og menntun.
Nemendur gengu á milli borða og tóku mjög virkan þátt, voru fróðleiksfús, áhugasöm og nýttu þetta frábæra tækifæri mjög vel!
Þarna var kominn saman mjög fjölbreyttur hópur starfsheita. Nemendur fengu tækifæri til að kynnast mjög ólíkum störfum og námi en auk fulltrúa framhaldsskóla og Erasmus+ komu til okkar leikjasérfræðingur hjá Evolytes, næringarfræðingur, rafeindavirki, kvensjúkdómalæknir, sérfræðingur á almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, dýralæknir og heilbrigðisverkfræðingur hjá Star Odda, lögreglumenn, félagsráðgjafar í barnaverndarþjónustu, upplýsingafulltrúi, matreiðslumaður, slökkviliðsmaður, rafvirki og múrari, rafveituvirki, tónlistarkennari, vélaverkfræðingur, forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðslu hjá Akademis og fornleifafræðingur/mannabeinameinafræðingur.
Algjörlega dásamlegur og mjög fjölbreyttur hópur, sem við þökkum kærlega fyrir þátttökuna í ár!
