Foreldrafélag Álfhólsskóla býður foreldrum fræðsluerindi frá KVAN við upphaf skólaárs

Foreldrafélag Álfhólsskóla býður foreldrum fræðsluerindi frá KVAN við upphaf skólaárs. 

Ingveldur Gröndal þjálfari og ráðgjafi hjá KVAN, fer á lifandi og hvetjandi hátt yfir mikilvægi þess að vera jákvæður leiðtogi – bæði fyrir sjálfan sig og aðra.

·       Hvað þýðir að vera leiðtogi?

·       Hvernig getum við valið að leiða aðra áfram með jákvæðni og hvers vegna skiptir það máli hverjum við kjósum að fylgja?

·       Félagsskapur með neikvæðum leiðtoga, bjargráð og leiðir til lausna

 

Í erindinu tengjum við gleði og gaman við daglegt líf barna, samskipti og sjálfsmynd.  Allir nemendur fá fræðslu um sama efni í skólanum fyrr um daginn.

Þessi fræðsla skilur eftir sig innblástur og verkfæri fyrir betra og jákvæðara skólalíf.

 

Dagsetning:      Fimmtudagur 9. október kl. 17-18

Staður:               Álfhólsskóli, salnum Hjalla-megin

Posted in Fréttir.