Útskrift 10.bekkjar vorið 2025

Miðvikudaginn 4.júní voru 64 nemendur í 10.bekk Álfhólsskóla útskrifaðir við hátíðlega athöfn á sal skólans í Hjalla.
Athöfnin hófst á ræðu Sigrúnar Bjarnadóttur, skólastjóra, og afhendingu viðurkenninga til nemenda.

Veittar voru viðurkenningar til nemenda frá foreldrafélaginu og skólanum. Viðurkenningarnar voru eftirfarandi.
Verðlaun fyrir félagsstörf: Tryggvi Jóhann Jónsson
Verðlaun fyrir framfarir og seiglu: Patt Ferrell Berger og Elvar Ingi Guðmundsson
Verðlaun fyrir alhliða námsárangur: Agla Björk Egilsdóttir, Arna Kristín Arnarsdóttir og Margrét Kristjánsdóttir

Þær Agla Björk Egilsdóttir og Lilja Lovísa Gunnarsdóttir fluttu lag úr söngleiknum Grease fyrir gesti.
Tryggvi Jóhann Jónsson ávarpaði svo gesti með skemmtilegri kveðju fyrir hönd útskriftarnemenda.

Að lokum kvaddi skólastjóri útskriftarhópinn með ávarpi.

Eftir athöfnina bauð skólinn öllum viðstöddum upp á veitingar.

Fleiri myndir má sjá á facebook síðu skólans: https://www.facebook.com/alfholsskoli/

Posted in Fréttir.