Í dag fór fram árleg landnámshátíð 5. bekkjar á Víghól, en nemendur hafa verið að vinna að samþættum verkefnum um landnám Íslands í samfélagsfræði, list- og verkgreinum. Við hófum daginn með undirbúningi í skólanum; Nafnspjöld voru búin til, andlit máluð og hár spreyjað í skemmtilegum litum. Síðan var gengið frá Hjalla að Víghól þar sem Árni smíðakennari leiddi skrúðgönguna á hestbaki. Þegar þangað var komið hófst fjörið. Nemendur skiptust á að fara í lummubakstur, reiðtúra, skartgripagerð og fjölbreytta leiki. Veðrið lék við okkur og þátttakan var frábær – sannkölluð uppskeruhátíð í anda landnámsins!
Fleiri myndir má finna á facebook síðu skólans – HÉR