Bekkjarstarfið
Í Handbók foreldrafélaga grunnskóla er kynnt hvernig setja má upp bekkjardagskrá fyrir veturinn. Inn á dagskrána eru settir viðburðir sem bekkjarfulltrúar hafa umsjón með, viðburðir á vegum foreldrafélagsins o.fl.
Sjá nánar hér á bls. 30.
Hugmyndir að viðburðum:
| Í skólanum | Utan skólans |
| Hefðbundið bekkjarkvöld með leikjum og bakkelsi | Fleyta flöskubátum niður Kópavogslækinn |
| Spilakvöld | Sundferð |
| Bingó | Skautaferð |
| Diskótek | Fjöruferð í Kópavoginn |
| Smákökubakstur fyrir jólin | Ratleikur og grillað í Guðmundarlundi |
| Baka pizzu og borða saman | Ratleikur í hverfinu |
| Piparkökumálun | Á slóðir landnámsmanna í Kópavogi |
| Föndur | Fara upp í Hallgrímskirkjuturn |
| Skemmtilegur fyrirlestur | Viðeyjarferð |
| Feðgakvöld/mæðgnakvöld | Keila |
| Jól í skókassa | Lasertag |
| Kvöldvaka með leikriti, bröndurum o.fl. | Leikhúsferð, kíkt á bak við tjöldin |
| Óvissuferð |
Spyrja krakkana hvað þau vilja gera
Allir bekkir í árgangi gerið eitthvað saman.
Passa foreldralaus boð.
Hvetja foreldra til að hittast um leið, t.d. með því að láta alla koma með eitthvað á hlaðborð. Þeir geta síðan spjallað meðan krakkarnir gera e-ð saman
Fleiri hugmyndir eru vel þegnar – hafið samband
Einnig lýsing/nánari útfærsla á viðburðum.